Búðu til þína eigin netapeysu
Það eina sem þarf til að gera netapeysu eftir eigin höfði, er að prjóna eina gisna prjónfestuprufu og láta Knittable sjá um rest. Þannig hefur þú frjálst val um garn, stærð möskva, stærð og snið.
VerkefniÞað eina sem þarf til að gera netapeysu eftir eigin höfði, er að prjóna eina gisna prjónfestuprufu og láta Knittable sjá um rest. Þannig hefur þú frjálst val um garn, stærð möskva, stærð og snið.
VerkefniHefur þú einhvern tímann kolfallið fyrir bók fullri af prjónamynstrum og loforðum um allar fallegu flíkurnar sem þú ætlar að prjóna úr þeim? Hefur bókin svo setið upp í hillu ár eftir ár og hugmyndirnar líka, bara til að vera tekin niður af og til, blaðað í gegnum og sett svo þangað aftur? Segjum tvö.
VerkefniAð velja sér uppáhaldsprjónaverkefni er eins og að gera upp á milli barnanna sinna, en að því sögðu eiga mynstraðir vettlingar sérstakan stað í hjarta mínu. Þeir voru fyrsta verkefnið sem kveiktu fyrir alvöru á prjónaáhuganum mínum enda fullkomin blanda af tækni og sköpun án þess að maður þurfi að bíða of lengi eftir niðurstöðunum.
VerkefniÉg elska litríkar húfur, og vissi um leið að ég ætlaði að nota afganga í þetta verkefni. Húfur eru fullkomnar til að nota niður í minnstu afganga! Ég notaði nokkra þræði saman í einu til að geta leikið mér með litina.
UppfærslaHefur þú einhverntímann glímt við að láta lykkjufjölda passa til að koma hnappagötum haganlega fyrir á lista? Við líka. Þess vegna bjuggum við til hnappagatareikninn til að hjálpa til og flýta fyrir!
FréttirÞað er ekki á hverjum degi sem maður birtist í uppáháldstímaritinu sínu. Nokkur orð um viðtalið við mig sem birtist í Laine nr. 24 sem kom út í mars, vorblaðinu í ár.
VerkefniStundum kviknar hugmynd út frá fallegu garni. Þegar ég fann þetta mjúka tweed garn frá BCGarn vissi ég um leið að ég yrði að prjóna klassíska kaðlapeysu úr því, það er eitthvað við tweed sem hreinlega öskrar kaðlar! Ég hafði aldrei prjónað kaðla áður svo ég var spennt að prófa. Það hentaði best fyrir mig að hugmyndina einfaldana, og kaðlana litla og viðráðanlega. Ég varð svo spennt fyrir verkefninu að ég kláraði peysuna á innan við viku!
VerkefniÚtsaumur er skemmtileg leið til að gera prjónaða flík einstaka. Með nokkrum einföldum tegundum útsaums má búa til fjölbreytt mynstur, allt frá fíngerðum blómamyndum yfir í flóknari skreytingar og áletranir. Með Knittable er hægt að gera fullkomnar grunnflíkur til að sauma út í, ýmist með því að nota uppskriftirnar eins og þær koma af kúnni eða með þvi að bæta við sinni eigin hönnun.
VerkefniGarnafgangar falla til við flest prjónaverkefni, og ef ekkert er aðhafst fyllast skápar og skúffur hægt og rólega af afgöngum. Það er ekki auðsótt að finna þeim annan tilgang, leitin að uppskriftum sem passa fyrir viðkomandi afganga í réttu magni og garntegund getur verið torveld, og það eru ekki allir með taugar í "yarn chicken".
UpplýsingarÞæfing getur virst flókin af því hún veltur á mörgum þáttum – tegund garns, þæfingartækni og prjónfestu. Knittable vettlingauppskriftin hjálpar þér að búa til þæfða vettlinga með því að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið. Uppskriftin tekur tillit til þess hversu mikið þæfða þú vilt hafa vettlingana þína og reiknar allar stærðir út frá því. Hér fyrir neðan eru nokkur ráð til að hjálpa þér að byrja á fyrstu þæfðu vettlingunum þínum.
UpplýsingarKeyptir þú garn án þess að vera með uppskrift í huga? Ertu með afgangahrúgu sem kallar á þig, en vantar uppskrift við hæfi? Knittable er verkfærið sem sem þarf til að blása lífi í garnsafnið þitt!