Þæfðir vettlingar
Þæfing getur virst flókin af því hún veltur á mörgum þáttum – tegund garns, þæfingartækni og prjónfestu. Knittable vettlingauppskriftin hjálpar þér að búa til þæfða vettlinga með því að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið. Uppskriftin tekur tillit til þess hversu mikið þæfða þú vilt hafa vettlingana þína og reiknar allar stærðir út frá því.
Hér fyrir neðan eru nokkur ráð til að hjálpa þér að byrja á fyrstu þæfðu vettlingunum þínum.

Prjónfesta og þæfing
Að gera prjónfestuprufu er auðveldasta leiðin til að kynnast garninu þínu, en fyrir þæfða flík hefur hún aukakost - það er hægt að nota hana til að prufukeyra þæfinguna! Ef þú ert að þæfa viðkomandi garn í fyrsta sinn getur verið gott að sjá hvernig þvottavélin fer með prufuna áður en flíkin sjálf er þæfð.
Athugið að reikna prjónfestuna fyrir vettlingauppskriftina áður en prufan er þæfð, og notið prjónfestuverkfæri Knittable til að auðvelda útreikningana.

Gerð og gæði garns
Allt ullargarn sem hefur ekki verið superwash-meðhöndlað hentar vel til þæfingar, og það sama á við um alpakka, merino og mohair. Mismunandi garntegundir þæfast þó á mismunandi máta, og fer útkoman einnig eftir prjónfestunni, því laust prjón þæfist meira en þétt prjón.
Ef lítil þæfing er valin í vettlingauppskriftinni ýfast vettlingarnir upp en lykkjumynstur er enn vel greinanlegt. Vettlingarnir verða aðeins þéttari og hlýrri. Ef mikil þæfing er valin er áferð vettlinganna einsleitari, lykkjur vart greinanlegar og vettlingarnir halda vindi og veðrum.

Tækni
Hægt er að þæfa vettlingana bæði í höndunum og í þvottavél. Handþvotturinn veitir hvað nákvæmasta stjórn á stærð og formi, en þæfing getur verið mismikil efir þvottavélum og þvottaprógrömmum. Það kemur þó ekki að sök því ef vettlingarnir koma of litlir út má teygja þá upp í rétta stærð á meðan þeir eru ennþá rakir, og ef þeir eru ennþá of stórir má setja þá aftur á sama prógram og jafnvel hækka hitann.
Almennt gildir um þæfingu að hún eykst með hærra hitastigi, ef sápa er notuð, og ef aðrar flíkur eru þvegnar með vettlingunum. Þá þarf þó að gæta þess að hinar flíkurnar gefi ekki af sér ló.
Tillögur að garni fyrir þæfingu
| Fínband / Fingering |
|---|
| KAOS Organic Brushed Alpaca |
| Ístex Einband |
| Filcolana Pernilla |
| Léttband / DK |
|---|
| Isager Jensen Yarn |
| Camarose Økologisk Hverdagsuld |
| Þykkband / Aran |
|---|
| KAOS Chunky Andean Wool |
| Ístex Léttlopi |
| Filcolana Peruvian Highland Wool |
| Stórband / Bulky |
|---|
| Hjelholts Uldspinderi Hyrdegarn |
| Ístex Álafosslopi |
| Bella by Permin |






Prjónaðu þína eigin útgáfu af þæfðum vettlingum með Knittable
Vettlingauppskriftin hjálpar þér að búa til fullkomna vettlinga til þæfingar í hvaða garni og stærð sem er. Sláðu bara inn prjónfestuna þína og mál, og við sjáum um restina!
Með því að gerast áskrifandi færðu einnig aðgang að þessum uppskriftum:
Veldu hvað hentar best
Ókeypis
- Prjónaverkfæri
- Mynsturhluti fyrir verkfæri
- Ótakmarkaðar sérsniðnar prjónauppskriftir
- 17% afsláttur
Mánaðarleg
- Prjónaverkfæri
- Mynsturhluti fyrir verkfæri
- Ótakmarkaðar sérsniðnar prjónauppskriftir
- 17% afsláttur
Árleg
- Prjónaverkfæri
- Mynsturhluti fyrir verkfæri
- Ótakmarkaðar sérsniðnar prjónauppskriftir
- 17% afsláttur


