Mynstraðir vettlingar

Nanna

Að velja sér uppáhaldsprjónaverkefni er eins og að gera upp á milli barnanna sinna, en að því sögðu eiga mynstraðir vettlingar sérstakan stað í hjarta mínu. Þeir voru fyrsta verkefnið sem kveiktu fyrir alvöru á prjónaáhuganum mínum enda fullkomin blanda af tækni og sköpun án þess að maður þurfi að bíða of lengi eftir niðurstöðunum.

Þess vegna er sérstaklega gaman að segja frá nýjustu viðbótinni við Knittable: Núna er hægt að bæta mynsturendurtekningu í vettlingauppskriftina til að auðvelda skapandi prjón enn frekar!

Eins og flest okkar, lærði ég að prjóna í grunnskóla. Ég segi lærði að prjóna, en ég byrjaði ekki að prjóna þá. Satt best að segja hundleiddist mér stöðluðu verkefnin sem okkur voru sett fyrir! Ég hef oft hugsað til baka síðan þá, sér í lagi eftir að ég byrjaði með Knittable og svo gott sem helgaði líf mitt prjóni. Hvernig var hægt að kenna mér að prjóna, án þess að kveikja áhugann?

Það var ekki fyrr en frænka mín kenndi mér að prjóna upp á nýtt þegar ég var 25 ára að ég kolféll fyrir því. Hún rétti mér prjóna og garn, kenndi mér að fitja upp, prjóna stroff og að bæta við þumli, og sýndi mér svo hvernig ég gæti notað tvo liti til að gera óendanlega margar útgáfur af mynstri. Ég hef ekki lagt frá mér prjónana síðan!

Eftir á að hyggja var stærstu munurinn milli þessara nálgana sköpunarfrelsið, og það var það sem gerði gæfumuninn.

Vettlingar eru fullkomna flíkin til að gera tilraunir með mynstur. Einfaldir í sniði og fljótprjónaðir!

Colourwork pattern

Teiknaðu upp mynstrið

Til að búa til þína eigin mynstruðu vettlinga er gott að byrja á að teiknaða upp mynstrið sem þú hefur í huga. Því færri lykkjur í mynstrinu, því líklegra er að útreikningarnir gangi upp fyrir stærðina sem þú velur, en Knittable gefur þér viðvörun ef uppskriftin er of langt frá umbeðinni stærð.

Þú getur látið ímyndunaraflið leika lausum hala eða notað innblástur frá öðrum prjónuðum flíkum, t.d. ef þú ert að prjóna vettlinga í stíl við lopapeysu er kjörið að nota hluta af mynstrinu fyrir vettlingana.

Þú getur notað rúðustrikað blað eða töflureikni, en einnig má nota til þess gerð verkfærði eins og Chartminder eða StitchFiddle.

Skeins of yarn

Veldu liti

Þegar litir eru valdir fyrir mynstur er gott að hafa eftirfarandi í huga:

Samliggjandi litir geta týnst í hvorum öðrum ef þeir eru of líkir. Gættu þess að velja ólíka liti nema að tilgangurinn sé sérstaklega að mynda aflíðandi litaskil.

Margir æpandi litir slást um athyglina og dregið þannig úr hvor öðrum. Hvítur eða ljós litur getur gefið hlutlausan bakgrunn til að aðrir litir njóti sín.

Leiktu þér með andstæður til að hanna einstaka og áhugaverða flík, hvort sem það eru andstæður í litatónum eða birtustigi.

Screen shot of mitten pattern settings

Notaðu Knittable til að útbúa uppskrift

Knittable vettlingarnir eru til í öllum stærðum, hvort sem er fyrir barn, fullorðna eða sérsniðið eftir eigin málum.

Mynsturvalmöguleikarnir opnast ef valið er "Bæta við mynstri". Þar sem hægt er að slá inn fjölda lykkja í mynsturendurtekningu fyrir belginn og velja hvort fjöldi mynsturendurtekninga eigi að vera jafn (eða hvort hann má vera oddatala).

Veldu jafnan fjölda mynsturendurtekninga ef þú vilt að mynstrið nái yfir allan vettlinginn.

Þessir vettlingar

Prjónfesta: 18 lykkjur x 24 umferðir = 10 x 10 cm

Prjónastærð: 4.5 mm

Garn: Léttlopi í 5 mismunandi litum

Garnmagn: < 50 g í heildina

Stærð: 6-8 ára

Hönnun: Einfalt stroff, 4 lykkjur í mynsturendurtekningu (þarf ekki jafnan fjölda endurtekninga) og engin þæfing.

Mittens mockup
Create user screen

Nú geturðu búið til þína eigin mynstruðu vettlinga með Knittable!

Reiknivélin útbýr uppskrift fyrir þig sem hæfir garni, stærð og mynstri. Leiktu þér að því að teikna upp mynstur og við sjáum um rest!

Með því að fara í áskrift færðu aðgang að öllum uppskriftunum okkar:

Við söfnum nafnlausum notkunarupplýsingum með vafrakökum og áþekkri tækni til að gera greiningar og bæta notendaupplifun. Er það í lagi?