Afgangapeysa

Nanna

Garnafgangar falla til við flest prjónaverkefni, og ef ekkert er aðhafst fyllast skápar og skúffur hægt og rólega af afgöngum. Það er ekki auðsótt að finna þeim annan tilgang, leitin að uppskriftum sem passa fyrir viðkomandi afganga í réttu magni og garntegund getur verið torveld, og það eru ekki allir með taugar í "yarn chicken".

Við nánari athugun hefur afgangahrúgan þó eitthvað við sig. Þarna er samansafn af garni og litum sem prjónaranum hefur líkað nógu vel í gegnum tíðina til að velja, og líklega leynast þar minningar um uppáhaldspeysu eða aðstandanda sem sprangar nú um í hlýrri flík.

Ein leið til að nýta afgangana sína án þess að þurfa að treysta á garnmagn af ákveðinni tegund, er að halda tveimur eða fleirum þráðum saman eins og um einn þráð væri að ræða. Þá getur prjónarinn ýmist skipt út einum af þráðunum fyrir nýjan þegar vill og hentar, eða þegar þráðurinn klárast. Þannig má leika sér með litablöndur og nýta sér svigrúm fyrir grófleika þráðanna, þar sem hver þráður hefur minna að segja um heildarprjónfestuna.

Í þessu ljósi fara afgangarnir úr því að vera annars flokks garn yfir í að vera fjársjóðskista nýrra möguleika.

Prjónaðu með tveimur eða fleiri þráðum í einu og skiptu einum og einum út fyrir nýjan til að búa til þína eigin einstöku litapalettu.

Felted mittens

1. Fáðu innblástur frá afgöngunum

Fyrsta skrefið í að prjóna afgangaflík er að hella afgöngunum á borð og hleypa ímyndunaraflinu af stað. Gerðu tilraunir með mismunandi liti og áferðir og taktu garnið sem þér líst á til hliðar. Mundu að þú þarft ekki að miða á ákveðna prjónfestu, Knittable uppskriftirnar virka fyrir hvaða prjónfestu sem er.

Raðið garninu upp í þeirri röð sem þið ætlið að nota það í. Ef nota á tvo þræði er gott að raða í tvær raðir, t.d. eina fyrir merino og aðra fyrir mohair. Takið mynd af útkomunni og notið sem leiðarvísi í næsta skrefi

Yarn swatch

2. Skissaðu peysuna þína

Í hefðbundnu prjóni er prjónfestan fyrst og fremst til að kanna prjónfestu. Fyrir afgangaprjón er hún aftur á móti annað og meira. Prufan er skissan þín af verkefninu, og gefur mynd af því hvernig litir blandast og áferðir koma út. Hún gefur líka vísbendingar um hvort að einhver kafli er of laus eða þéttur í sér.

Finnið gott ljós, látið fara vel um ykkur og fitjið upp 18–26 lykkjur. Prjónið tvær umferðir með hverri garnblöndu, og skiptið svo út einum af þræðinum fyrir næsta garn í röðinni. Eina reglan er að nýi þráðurinn ætti að vera af svipuðum grófleika og sá sem þú tekur út í staðinn.

Mundu að skissan þarf ekki að vera fullkomin! Það má breyta hverju sem er þegar flíkin sjálf er prjónuð.

Felting process

3. Þvoðu skissuna og leggðu til þerris

Þvoið prjónfestuprufuna. Það er nóg að bleyta vel upp í henni undir rennandi vatni, kreysta vatnið úr (t.d. inn í þvottapoka eða handklæði) og leggja hana til. Þegar prjónfestuprufan er þornuð mun bera minna á öllum mismunum milli garnblanda.

Þegar skissan er tilbúin er hún orðinn næsti leiðarvísir við að prjóna peysuna sjálfa. Í staðinn fyrir að fela endana, geturðu notað þá til að vita hvaða garn er næst í röðinni, og nú þegar allar lita- og garnákvarðanir eru komnar á hreint er kominn tími á að slaka á, taka upp prjóna og prjóna einstöku afgangapeysuna þína.

Tillögur að garnblöndu

2 þræðir
1 mohair + 1 fínband (fingering)4 mm prjónar
2 mohair4,5 mm prjónar
1 mohair + 1 þykkband (aran)5 mm prjónar
2 léttband (DK)6 mm prjónar
3 þræðir
3 mohair5 mm prjónar
2 léttband (DK) + 1 mohair7 mm prjónar
3 léttband (DK)8 mm prjónar
léttband (DK) + 2 þykkband (aran)10 mm prjónar

Þessi peysa

Prjónfesta: 15 lykkjur x 20 umferðir = 10 x 10 cm

Prjónastærð: 6 mm (7 mm ef þú prjónar fast!)

Garnblanda: 1 þráður mohair, 1 þráður fingering, 1 þráður Creative Make it Tweed og 1 þráður silki/alpakka/glimmer lace þræðir notaðir til skiptis. 4 þræðir í heildina.

Garnmagn: 260 g

Stærð: 4 - 6 ára

Snið: Víð (15 cm svigrúm)

Sídd: Venjuleg

Hönnun: Samanbrotið hálsmál, einfalt stroff, 3 lykkjur í löskum.

Skjáskot af peysuuppskrift
Búðu til notanda skjáskot

Nú geturðu búið til þína eigin peysu með Knittable!

Peysuuppskriftin hjálpar þér að búa til fullkomnu uppskriftina fyrir afgangsgarnið þitt. Sláðu bara inn prjónfestuna, veldu stærð og við sjáum um rest!

Með því að fara í áskrift færðu aðgang að öllum afgangavænu uppskriftunum okkar:

Við söfnum nafnlausum notkunarupplýsingum með vafrakökum og áþekkri tækni til að gera greiningar og bæta notendaupplifun. Er það í lagi?