Kaðlapeysa
Stundum kviknar hugmynd út frá fallegu garni. Þegar ég fann þetta mjúka tweed garn frá BCGarn vissi ég um leið að ég yrði að prjóna klassíska kaðlapeysu úr því, það er eitthvað við tweed sem hreinlega öskrar kaðlar! Ég hafði aldrei prjónað kaðla áður svo ég var spennt að prófa. Það hentaði best fyrir mig að hugmyndina einfaldana, og kaðlana litla og viðráðanlega. Ég varð svo spennt fyrir verkefninu að ég kláraði peysuna á innan við viku!
Í upphafi var ég ekki viss hvernig ég vildi hafa kaðlana, en byrjaði á að stilla tveimur upp framan á peysunni rétt við upphaf laskanna. Þegar berustykkið fór að taka á sig mynd sá ég að peysan yrði tómleg ef það væru bara tveir kaðlar framan á og tveir aftan á, svo ég bætti við öðru setti af köðlum eftir 10 lykkjur af perluprjóni. Þá voru komnir fjórir kaðlar á hvorri hlið og meiri fylling i peysuna.
Til að útfæra þessa hönnun á þína eigin peysu þarftu bara að velja hvað þú vilt hafa kaðlana breiða, hversu margar lykkjur eiga að vera á milli þeirra, og hvort bilin á milli þeirra eiga að vera jafn breið. Þessi peysa var t.d. prjónuð fyrir 2-4 ára, en auðvelt er að útfæra hönnunina yfir á stærri peysu með því að auka lykkjuföldann á milli kaðlana. Það eina sem er mikilvægt að hafa í huga við að skálda kaðlapeysu, er að lykkjurnar rétt við kaðlana verða að vera prjónaðar með aðferð sem gefur gott mótvægi við kaðlana svo þeir sjáist vel. Brugðnar lykkjur eða perluprjón eins og er sýnt í þessari peysu virka t.d. vel.
Það besta við að prjóna kaðlapeysur með löskum, er að þú getur hannað þær jafnóðum og þú prjónar!

Skissaðu upp peysuna
Blað og blýantur virka vel til að teikna útlit peysu upp, en það jafnast ekkert á við prjónfestuprufuna til að skissa upp prjónaflík. Prufan sýnir þér hvernig kaðallinn lítur út prjónaður, og segir þér hver prjónfestan er. Kaðlar geta haft mikil áhrif á prjónfestuna miðað við slétt prjón, svo það er gott að hafa rétta prjónfestu til að tryggja góða útkomu. Blað og blýantur henta aftur á móti vel ef þú vilt teikna kaðlana og mynstrið upp til að sjá heildarmyndina.

Búðu til grunnuppskriftina
Sláðu inn málin þín, snið, breidd laska og prjónfestu í Knittable peysuuppskriftina. Þegar þú ert komin með tilbúna uppskrift getur þú byrjað að prjóna og bætt kaðlahönnuninni við jafnóðum. Þú gætir jafnvel haft kaðla í löskunum sjálfum með því að stilla breiddina á löskunum til að rúma kaðal!

Prjónaðu af fingrum fram!
Það er gott að hafa mynd af því sem þú ætlar að prjóna áður en þú byrjar, en stundum gerast töfrarnir á meðan verkinu stendur.
Ég fór af stað með hugmynd um tvo klaðla fyrir þessa peysu, en þegar ég sá mynstrið verða til sá ég tækifæri til að bæta meiru við. Ekki vera hrædd við að hlusta á innsæið og leika ykkur með útkomuna!




Kaðlapeysa
Það sem þarf: Kaðlaprjónn
Prjónfesta: 18 lykkjur x 24 umferðir = 10 x 10 cm
Prjónastærð: 4 mm fyrir stroff og 5 mm fyrir rest
Garn: BC Garn Hamilton Tweed 1 GOTS í lit 29
Garnmagn: 190 g
Stærð: 2 - 4 ára (prjónað fyrir eina 3 ára)
Snið: Víð (15 cm ease)
Sídd: Venjuleg
Hönnun: Samanbrotið hálsmál, einfalt stroff, 1 lykkja í löskum
Mynstur á berustykki




Nú geturðu búið til þína eigin peysu með Knittable!
Með því að búa til frían notanda færðu aðganga að verkfærum sem hjálpa þér með alls konar prjónatengda útreikninga.
Komdu í áskrift (eftir 14 daga prufutíma) til að fá aðgang að uppskriftunum okkar:



