Svör við algengum spurningum sem við fáum um Knittable
Uppskriftir
Af hverju tilgreina uppskriftirnar ekki garn eða prjónastærð?
Uppskriftirnar okkar virka með hvaða garni og prjónastærð sem er. Með því að slá inn prjónfestuna þína fáum við allar upplýsingar sem þarf til að búa til uppskrift fyrir þig. Notaðu prjónana sem þú notaðir til að prjóna prjónfestuprufuna, eða notaðu prjónastærðina sem garnmiðinn leggur til.
Get ég bætt mynsturendurtekningu við allar uppskriftir?
Í dag er hægt að bæta mynsturendurtekningu við fyrir vettlinga og peysu. Það stendur til að bæta því við fyrir sokka og húfu líka.
Ætlið þið að bæta við hringlaga berustykki fyrir peysu?
Já, það er á listanum okkar! Viljum gjarnan gera notendum okkar kleift að smíða alvöru lopapeysur.
Ætlið þið að bæta við gollu?
Já, það stendur til! En þangað til getur þú notað peysuuppskriftina, klippt hana upp eða prjónað fram og til baka og notað svo Hnappagatareikninn til að prjóna kantinn.
Má ég gefa Knittable uppskriftirnar út sem mínar eigin?
Þú getur notað tölur og stærðir úr Knittable uppskriftum sem viðmið til að skrifa þína eigin uppskrift. Það má hins vegar ekki nota textann í uppskriftunum beint. Hafðu samband við okkur ef það síðarnefnda er það sem þú hefur í huga.
Almennt
Hvað er Knittable?
Knittable er vefsíða sem býr til prjónuppskriftir fyrir peysur, sokka, vettlinga og húfur sem hæfa hvaða stærð og garni sem er. Settu bara inn málin þín og prjónfestu, og við búum til sérsniðna uppskrift fyrir þig.
Af hverju er hluti síðunnar á ensku?
Þetta getur gerst þegar við gefum út viðbót eða uppfærslu á vefsíðunni, en höfum ekki þýtt viðbótina enn. Við viljum gjarnan gefa hratt út svo notendur okkar njóti strax góðs af nýjum hugmyndum, svo við gefum stundum út uppfærslur á ensku og íslensku fyrst, frekar en að bíða eftir þýðingum.
Hvernig breyti ég tungumálinu á vefsíðunni?
Þú getur breytt tungumálinu með því að ýta á myndina af hnetti í efra hægra horni síðunnar.
Við söfnum nafnlausum notkunarupplýsingum með vafrakökum og áþekkri tækni til að gera greiningar og bæta notendaupplifun. Er það í lagi?